Fógetagarðurinn
Mikið óskaplega get ég gleymt mér í vinnunni við að horfa út um gluggann, enda útsýnið ekki af verra taginu. þegar veður er gott verður mannlífið hérna fyrir utan margbreytilegt, sem og á austurvelli - en þar fer senn fram í dag forvarnarhátíð og dimissjón blindfullra menntskælinga! Eníhú, þegar ég var staðsett með lansaranum uppí Mjódd þá átti ég mér alltaf einn uppáhaldsróna (enda ekki mikið úrval, þessi settist alltaf á svipuðum tíma á bekkinn fyrir utan gluggann og teigaði hlandvolgan Bawarian bjór og reykti long sígarettur) en fógetagarðurinn er vissulega himnaríki rónanna hér í miðbænum. Þeir fyrstu byrja að tínast á svæðið uppúr 10, oftast með einn tvo bjóra beint úr ríkinu - en sumir koma í hópum með vodkapelana sína og skiptast á vænum slurkum. Merkilega er að þetta fólk er af öllum stærðum og gerðum, konur og kallar, ungir sem aldnir, og öll þekkjast þau innbyrðis. Hressandi var að fara heim til sín um 5 leytið á mánudaginn og sjá einn rónann dauðann á bekknum með opna bjórdós sér við hlið. Góður verður sopinn þegar blundurinn þrýtur.
Inn í þetta sjónarspil blandast svo útlensk fjölskylda, sem hefur setið á bekk í garðinum í nokkra daga - marga klukkutíma í senn, að glápa á stéttina, venjulegt fjölskyldufólk og dauðadrukknar unglingstelpur sem höfðu ekki hugmynd um vökult auga Jane beint fyrir ofan þær. mikið hló ég að vitleysunni í þeim, en þær voru að kasta uppá hver ætti að taka gúllara af opal-flösku.
Nú rétt í þessu varð mér litið út um gluggann og útlenska fjölskyldan er þar enn. Mín kenning er sú að þetta séu einhvers konar flóttamenn, sem búa hjá hjálpræðishernum og eru að bíða eftir einhverskonar hæli. Ég get ekki ímyndað mér að sitja á bekk allan daginn og bora í nefið sé eitthvað sem fólk kýs sér til dægrastyttingar. Oft sitja þau þrjú saman á bekk, en í morgun tóku karlinn og sonurinn sig til og fóru á annan bekk langt frá kellingunni, og þóttust ekki taka eftir henni. Hún virðist lítil í sér, enda haltrar hún um á hækju.
Ég sendi inn myndablogg af útsýninu.
Ég bið vinsamlegast alla þá sem vilja eitthvað með mig hafa að hafa samband ef þið eigið leið um miðbæinn, sérstaklega í sumar, þegar það er algjört æði að kíkja á austurvöll og sleikja aðeins sólina, en einnig er ég líka mikið fyrir lönsj-hitting.
yfir

3 Comments:
Ég trúi að nýja útsýnið þitt sé fjörugt en mig grunar að Mjóddin hafi ekki verið síðri. Eftir veru mína í jólapósthúsinu í Mjódd um síðustu jól efast ég ekki um að Mjóddin sé eitt einkennilegast svæði á jörðinni.
Vá! Ég hef reyndar aldrei séð heimildamyndina, enda þurfti ég þess ekki því ég hafði þessa furðufugla beint fyrir nefinu á mér alla daga. Man t.d. eftir einni konu sem kom með krakkan sinn ap senda bréf og hún var svo full að ég þurfti að hjálpa henni að ná aurunum upp úr buddunni hennar. Auk þess sníkti hún Íslandspósts kúlupenna af okkur því hún vildi gefa syni sínum hann í jólagjöf.
Húsvörðurinn er samt verstur!
Helga
Ég ætla sko að taka þig á orðinu og mæla mér mót við þig mörgum sinnum í góða veðrinu niðrá Austurvelli í sumar!
Skemmtilegasta sem ég veit að hanga á austurvelli á sumrin!
Það eru orð að sönnu, fólkið í mjóddinni er ekki alveg eins og fólk er flest - ótrúlegasta samansafn af skrítnu liði. Mæli samt með því að þú sjáir heimildarmyndina, húsvörðurinn er þar í aðalhlutverki, sérkennilegt eintak.
Já Austurvöllur er yndislegur á sumrin, hlakka til að hitta þig ausa og sleikja sólina í mannmergðinni jíhhaaaaaa
Sendu inn athugasemd
<< Home