1.2.06

Dagurinn í dag er enginn venjulegur dagur.

Í dag, miðvikudaginn 1.febrúar 2006, fæddist Eggert Skúlason (eða semsagt hann braust út úr egginu sínu). Móðir heilsast vel, en Eggert er svo nýr að hann er eiginlega bara húðpoki með vængi og gogg, en engar fjaðrir. Nú bíður hann, ásamt foreldrum sínum, spennt eftir hinum systkinunum sem ættu að láta sjá sig á næstu sólahringum.

Mér er tjáð að Eggert sé svoldið veiklulegur og viðkvæmur, enda ekki skrítið þar sem hann er búinn að hýrast í sirka 3x2cm stóru eggi í 3 vikur.

Húrrrra fyrir pylsugerðarmanninum!

Ég set svo inn myndir um leið og hægt er að trufla þau við uppeldið.

8 Comments:

Anonymous ausa said...

Til hamingju!

Hlakka mikið til að sjá Eggert og félaga :)

ÞEtta er sannanlega mikill dýrðardagur!

12:45 PM  
Blogger GI Jane said...

hmmmm ég var að fatta að það er frægur íslenskur sjónvarpsmaður sem heitir Eggert Skúlason... ætli við verðum þá ekki að finna eitthvað millinafn á Eggertinn okkar svo fólk fari nú ekki að rugla þeim tveim saman ;)

12:59 PM  
Anonymous Nafnlaus said...

ohhh til hamingju með erfingjann, það hlaut að koma að þessum degi..alveg spennt að sjá myndir takk...við mæðgur erum einnig að telja niður þar til þú kemur á morgun ooo það verður svo gaman að sjá þig :)

kv. dísurnar tvær

1:40 PM  
Anonymous Nafnlaus said...

HEI, hvernig er að sofa hjá manni sem er orðinn AFI? hmmmm....

3:10 PM  
Blogger GI Jane said...

alveg jafn spennandi eins og að sofa hjá konu sem er AMMA :)

3:47 PM  
Anonymous Nafnlaus said...

já, ertu mikið að því!

I see :)

Þessi týpa ;)

6:54 PM  
Anonymous dóra said...

jei til hamingju!

9:30 AM  
Blogger GI Jane said...

ég er búin að sjá Eggert í fyrsta skipti og ooooo hvað hann er sætur, með pinkulítla hvíta dúnhnoðra á sér, hann spriklaði smá fyrir mig og allt!

vaknaði við óvenju mikið tíst í morgun, spurning hvort að það sé kominn nýr ungi!!!

10:05 AM  

Sendu inn athugasemd

<< Home