breytt plan
ég hef ákveðið það að þegar sá svartnættis bölsótans bjévítans dauða og djöfuls dagur 6.júlí 2010 rennur upp, að í staðinn fyrir að henda mér fram að kletti, eða missa hárblásarann 'óvart' ofaní baðið, eða 'óvart' tengja slöngu úr pústinu inní farþegarýmið á bílnum mínum, eða 'óvart' detta framan á kjötsögina... þá ætla ég að verðlauna mig í staðinn fyrir að ná að lifa af þrjátíu ára afmælið mitt og gefa sjálfri mér glænýjan volvo S80 og elska hann og dá það sem eftir er. ég ætla að byrja að safna núna, því þessi bíll er víst ekki gefins, og aka honum burt úr brimborg strax við opnun þennan dag. ég er að vona að þetta muni hjálpa mér við að sættast við þá hræðilegu staðreynd að þá verði ég orðin GÖMUL KONA!
ég ætlaði að setja inn mynd af þessu djásni en þetta blogg drasl vildi ekki hlýða, svo þið getið skoða bjétur hér
ég ætlaði að setja inn mynd af þessu djásni en þetta blogg drasl vildi ekki hlýða, svo þið getið skoða bjétur hér

6 Comments:
þú ert samt enn ekki nema 25 samt er eins og stundum að þú látir eins og þú sért alveg eldgömul...
litla skinnið, en ég styð þetta með volvoinn þá get ég fengið mér einhvern sveittann BMW þegar ég verð 30 þó ég verði nú örugglega búinn að því fyrir þann tíma.
BT
jæja spæta!
þú getur alltaf huggað þig við það að sama hversu GÖMUL þú verður, þá verð ég alltaf ELDRI!
þú lætur bara eins og þú sért að verða elliær... viltu ekki bara fara að plana fimmtugsafmælið? tíhí.. það er reyndar æsispennandi hugmynd. plana fimmtugsafmælið á einhverjum exótískum stað, leggja fyrir 500 kall á mánuði þangað til og gera þetta með brjáluðum stæl!
pant vera boðin!
Finnst að þú eigir bara að sæta þig við við V40 eins og við hin ;)
Thank you!
[url=http://lfmvlhhr.com/iplr/fnuo.html]My homepage[/url] | [url=http://fwlfyqht.com/noqa/afpo.html]Cool site[/url]
Nice site!
My homepage | Please visit
Thank you!
http://lfmvlhhr.com/iplr/fnuo.html | http://jvxwhgaa.com/lhqc/uddk.html
Sendu inn athugasemd
<< Home