6.2.06

af hinu og þessu

afskaplega góð helgi að baki, eyddi fimmtudagskveldi í faðmi dísu eldri og dísu yngri, og þar var nú ýmislegt skrafað eins og gefur að skilja - föstudagskvöldinu var svo líka eytt í faðmi dísanna, enda er þar ákaflega gott að vera :) á laugardeginum flúði dísa eldri þunnildið heima hjá sér og bjargaði mér frá þunnildinu heima hjá mér og við skelltum okkur í stuttan en afar góðan Ikea rúnt, og komum við hvorugar tómhentar heim :) maður finnur alltaf eitthvað til að kaupa í þessari blessuðu búð, sumt nauðsynlegra en annað...

við BT skelltum okkur svo í fimm bíó og sáum hina stórgóðu og skemmtilegu Walk the line, hún fær fullt hús stiga.



gripum svo með okkur kínverskan og átum yfir misgóðri júróvisjón, sylvía nótt var að sjálfsögðu snilld og bjargaði aldeilis kvöldinu. við tókum svo góðan kvöldrúnt um höfuðborgarsvæðið áður en heim var haldið í kósí fyrir háttinn :) við erum best!

sunnudagurinn var rólegur og fór í kúr, lestur og sjónvarpsgláp, auk þess sem systir mín kom með barnaskarann í ungaskoðun, systkinin Eggert, Lukka og Sigfús kallaður Fúsi voru prúð og góð og sprikluðu svoldið fyrir gestina, þeim til mikillar gleði.

eftir mat í gær fórum við svo aftur í bíó, enda ekkert nema stórmyndir þessa dagana í kvikmyndahúsum borgarinnar, við erum líka að búa okkur undir óskarinn - sáum að þessu sinni Munich sem er líka stórgóð alveg hreint, og fær einnig fullt hús stiga frá röggunni... ekki slæmt það.



þá er næst á lista Capote og Constant gardener, þá held ég að ég verði þokkalega undirbúin fyrir óskarinn...

að lokum, mikið óskaplega er fresca gott sluurrrrppppp
og að allra allra lokum, bachelorinn byrjar á fimmtudaginn!