ó men ó men ó men!
hvað haldiði krakkar?!? við BT erum að verða amma og afi!! undir feita, en örugglega hlýja og mjúka, rassinum hennar ólafar hvíla 5 ákaflega myndarleg egg!!! ohhh ég er svo stolt af þessum snilldarfuglum, þau er svo ótrúlega klár !!! og nú er bara að bíða og sjá hvort ekki komi ungar úr einhverjum eggjunum, mikið yrði það dýrlegt að hafa nokkra litla unga gargandi í kotinu, þetta er hátíðisdagur!
ég læt fylgja mynd af hjónakornunum sem eru að stofna sína fyrstu fjölskyldu.
ég læt fylgja mynd af hjónakornunum sem eru að stofna sína fyrstu fjölskyldu.

10 Comments:
Ertu að grínast!!!!
Til hamingju!
Ohhh... hvað ég hlakka til að sjá litla fallega ástarunga :þ
Loks fær Ásta barnabörn ... eða barnabarnabörn!
Hvað eruð þið eiginlega að gefa þessum fuglum? Mínir "nutu ásta" mörgum sinnum á dag shameless í rúmt ár en aldrei komu nein egg!
Mikil frjósemi á ykkar heimili ;)
það er til aukabúr í jakaselinu, nú veit ég hver fær eitt par (wink, wink)
við sendum að sjálfsögðu eitt stykki par niðrá kvía...
múhahahaha þau eru svo frjósöm þessar elskur! annars er galdurinn að setja upp varpkassa, þau eignast ekki egg nema það sé kassi ;)
Til hamingju.
Þegar þið heyrið lávært tíst er komin ungi :) Mín verpti 6 eggjum og það komu 5 ungar þannig að skynndilega átti ég 7 fugla. Þessir ungar voru líka svo sniðugir að þeir hermdu allt eftir hvor öðrum, alltaf eins og þeir væru í þrautakóng ;) Því miður verpti hún strax aftur 2 eggjum og þá komu tveir ungar í viðbót en hún varð svo horuð á að gefa þeim að borða. Veit ekki hvað gerðist en þeir dóu þegar þeir voru komir með fiður og allt og annar var meira segja farin að fara úr kassanum. Allavega mæli með að þið takið varpkassann fljótlega eftir að ungarnir eru farnir úr honum svo þau verpi ekki bara meira. Þetta lið stoppar aldrei.
hehe takk fyrir þetta elsa. við erum alveg græn í þessu, vitum ekkert hvernig við eigum að taka á væntanlegum barnabörnum :) en þetta er voða spennandi og ef þetta tekst þá held ég að það sé engin spurning um að taka varpkassann sem fyrst :) það er örugglega mikið lagt á greyið Ólöfu :)
Þetta eru voða sætir fuglar sem þú átt, voða litskrúðugir,hvaða tegund er þetta?
Ég átti svona litla gára, þeir voru illauppaldir, uppáhaldsmaturinn hjá kjellingunni var popp og kók ;) Ætli hún hafi ekki verið á salt og sykurtrippi.
krútt!
ooo þetta er æði... eitt ráð samt.
mágkona mín var með svona klassíska græna páfagauka sem verptu eggjum. svo voru hún og krakkarnir svo ofurspennt að skoða og kíkja á litlu hárlausu ungana að mamman varð alveg paranojuð og sat svo fast á þeim að 2 þeirra urðu fatlaðir eftir hana og gátu ekki gengið! ðakk... fæ alveg hroll við tilhugsunina... eníveis, bara passa sig að ónáða þá ekki of mikið eftir að eggin klekjast
þetta eru ástargaukar, aðeins stærri en gárarnir og æðislega fallegir! það er talað um að þessi tegund sé smáfuglategund með stórfuglaskapgerð, og það er sko satt!
en já við ætlum að gefa þeim alveg frið og ró á meðan á þessu stendur, held að við látum þau að mestu í friði alveg fyrsta mánuðinn, þetta verður svaka gaman :)
Ég er nú ekki mikið fyrir fiðurfénað en óska ykkur innilega til hamingju með að vera orðin amma&afi!
Sendu inn athugasemd
<< Home