dónabörn
já við BT höfum komist að því að við höfum alið upp dónabörn! þau skúli og ólöf eru heldur betur að lifa lífinu þessa dagana, hreiðurgerð í fullum gangi - voða sætt halda margir ... en nei nei, þessir dónafuglar eru endalaust að 'njóta ásta' nema þetta er ekki að njóta ásta heldur argasta klám, við hjónin förum hjá okkur og blygðumst okkar við að horfa á þetta. þau eru ekki húsum hæf og ekki hægt að bjóða gestum uppá svona sjó, spurning um að kaupa tjald til að draga fyrir þegar herlegheitin byrja. það er eins gott að við fáum dansandi fallega og skemmtilega unga út úr þessu sem fyrst, svo við getum tekið varpkassann í burtu og setið inni í stofu án þess að roðna niður í tær.
jæja þetta er kannski soldið ýkt en kynmök fugla eru sérstaklega spes, þau eru ekki feimin við að hossast fram og tilbaka á stönginni sinni fyrir framan foreldrana. hvað varð um siðferðið í þessu uppeldi okkar?

1 Comments:
Þau voru að klára aftur bara rétt í þessu... þau hafa sært blygðunarkennd mína.
Sendu inn athugasemd
<< Home