djöfull er þetta sumar ömurlegt! hvað er málið með þetta veður?
27.6.06
26.6.06
smá HM útrás
Aðvörun: þeir sem halda með Englandi í HM ættu ekki að lesa lengra.
djöfull er wayne rooney ljótasta og leiðinlegasta barn í heimi! hann lætur eins og 5 ára ofdekrað frekju ógeðisbarn á vellinum, og stappar niður fótunum í bræðiskasti þegar hlutirnir ganga ekki upp eins og hann vill! svo grettir hann sig óstjórnlega og er hryllilega viðbjóðslegur - manni verður illt af !

ojbara ojbara ojbara ullabjakk
það ætla ég að vona að ástmaður minn, figo, buffi rooney í plokkfisk í leik portúgals og englands í 8-liða úrslitunum. og í framhaldi af því má rooney hverfa af yfirborði jarðar að eilífu, amen.
bestastur
annars er lítið í fréttum, næsta helgi verður tekin í ekta íslenska útilegu með ella og ausu, og þeim sem langar með, ekkert hefur verið ákveðið um áfangastað nema að þar mun vera besta veðrið á landinu.
djöfull er wayne rooney ljótasta og leiðinlegasta barn í heimi! hann lætur eins og 5 ára ofdekrað frekju ógeðisbarn á vellinum, og stappar niður fótunum í bræðiskasti þegar hlutirnir ganga ekki upp eins og hann vill! svo grettir hann sig óstjórnlega og er hryllilega viðbjóðslegur - manni verður illt af !

ojbara ojbara ojbara ullabjakk
það ætla ég að vona að ástmaður minn, figo, buffi rooney í plokkfisk í leik portúgals og englands í 8-liða úrslitunum. og í framhaldi af því má rooney hverfa af yfirborði jarðar að eilífu, amen.
bestasturannars er lítið í fréttum, næsta helgi verður tekin í ekta íslenska útilegu með ella og ausu, og þeim sem langar með, ekkert hefur verið ákveðið um áfangastað nema að þar mun vera besta veðrið á landinu.
22.6.06
aðdáendur mínir hafa margir hverjir kvartað yfir myndasíðunni sem ég nota - hún sé eitthvað óþekk og leiðinleg. ég reddaði því auðvitað og er búin að færa allaveganna hvassaleitis myndirnar á nýjan stað.
I Hluti
II Hluti
Annars er lítið að frétta, íbúðin gengur vel - stofan er næstum því tilbúin, og byrjað verður að flísaleggja baðherbergið um helgina. þá á eftir að mála ganginn og herbergin tvö, auk þess sem eitthvað verður gert við eldhúsið.
vonandi verðum við flutt inn fyrir haustið :)

17.6.06
myndir myndir myndir
vá hvað við erum dugleg að taka myndir !!! ef við værum nú alltaf svona dugleg, já þá væri sko gaman að lifa.
þetta eru semsagt fleiri myndir úr nýju íbúðinni, þetta er allt að koma - nóg vinna framundan samt.
gleðilegan afgangs seytjánda.
los fótos

14.6.06
fyrstu myndir af flutningum og framkvæmdum í Hvassaleiti 12 má sjá hér. ég lofa svo að taka fleiri og betri myndir á næstu dögum og setja jafnóðum hér inn - fólki til gagns og gamans.
Sumar myndir eru soldið óskýrar, en það er af því að myndasmiðurinn ég var eitthvað að klúðra súmminu á myndavélinni, ég lofa að bæta mig næst.
adjö
Öpdeit: mér var góðfúslega bent á það af Herra T að það var ekki súmmið sem klikkaði heldur fókusinn á myndavélinni... rétt skal vera rétt!

30.5.06
9.5.06
maður lifandi
úffff þvílík hitamolla hérna niðrí bæ í gær!! fór í hádeginu á galíleó að borða, sat þar fyrir utan og þvílík stemmning, troðið af fólki allsstaðar og steikjandi hiti. það sem vakti mestu furðu mína er fyrirbæri sem er sérstaklega sjaldgæf sjón. út um allt voru ungir strákar (á mínum aldri), stundum einn stundum tveir, strollerandi um miðbæinn með sitthvoran barnavagninn og hliðartöskur með öllu nauðsynlegu fyrir barnið. Ég sé BT og JD í anda arka þvert yfir Austurvöllinn með barnavagna, til að hitta Ella bró sem stendur og veifar með lítinn orm í burðarpoka framan á sér, en þá akkúrat heyrist kallað og þarna liggur Jonni á leikteppi á miðjum Austurvelli að gefa öðrum ormi að drekka úr pela...einmitt!!!
ég dáist samt að ykkur strákar sem eru í feðraorlofi, þetta er skemmtileg sjón :)

Rassi minn seldur
Rassi litli, fallegi fjólublái hondu civicinn minn, var seldur hæstbjóðanda í gærkvöldi. tómleikatilfinning gerði vart við sig eftir að hann var farinn, enda búinn að vera dyggur þjónn minn í rúm tvö ár.
eeeen það skemmtilega við þetta allt saman er að í morgun þurfti ég að taka strætó í vinnuna! ótrúlegt að fleiri skuli ekki nota strætó, þetta er fáránlega þægilegur ferðamáti svona í morgunsárið - sérstaklega þegar veðrið er svona gott eins og í morgun. ekkert umferðarstress, bara slaka á og horfa út um gluggann á mannlífið, ég er ekki frá því að ég sé mun afslappaðri í vinnunni í dag heldur en aðra daga ;)
en jæja fleira í fréttum, við BT vorum að taka að okkur fósturbarn, Kíkí litla (aka Högna) sem er pinkulítill gári. nú eru því 4 fuglar á heimilinu, en Högni sem er minnstur er sko enginn eftirbátur fuglafjölskyldunnar í öskrum, en hann er vaknaður klukkan 5 á næturnar og gólar mikið. skiptir þó engu hvort sé breytt yfir hann eða ekki.
íbúðamál eru enn óleyst, lítur allt út fyrir að við verðum á götunni í byrjun júní, og herra forstjóri byrjar líklega í vinnunni í næstu viku.